Monday, January 14, 2008

og við höldum áfram......

Jæja, skólinn byrjaður og það er nokkuð erfitt að koma sér fram úr á morgnana, sem er ótrúlegt fyrir mig A manneskjuna. Langaði að prófa þetta blogg en veit ekki hve dugleg ég verð. Ætli maður þurfi þá ekki að fara að lesa öll hin bloggin hjá vinum mínum. Leigjandinn minn er kominn til baka. Svo nú get ég sofið aftur. Já og fékk mér nýjan sófa. Gott að eiga góða vini, en Stefán hjálpaði mér með sófann upp ásamt manninum sem keyrði sófann hingað og stelpurnara Doro og Björk settu hann saman. Ekki svo að skilja að mér finnist leiðinlegt að setja saman hluti, en þær voru hreinlega æstari en ég, tíhí :) Klukkan orðin margt svo nú er kominn háttatími. Góða nótt og sofið rótt, eða oyasumi nasaii.