Sunday, December 14, 2008

nihongo wo benkyou shite imasu ne :)

konbanwa, watashi wa ima nihongo wo benkyou shite imasu. En annars er nú ekki mikið að frétta. Sumarið var svakalega skemmtilegt. Við fórum út um allan bæ í vinnunni, með börnin í sund og að skoða ýmisleg söfn og leika okkur. Urðum öll rosalega brún og sæt og flögnuðum svona um það bil 3 til 4 sinnum. Ég aðallega á nefinu. En héldum brúnkunni, því að veðrið var frábært, hreint út sagt. Held að þrisvar hafi komið eitthvað í líkingu við rigningu, en hún stoppaði stutt við. Skólinn er búin að vera strembinn þess önn og ég var nú næstum komin á það stig að hætta bara við allt saman, ef það væri ekki fyrir þá staðreynd að mig langar svo roooosaaaleeeegaaaa mikið út til Japans á næsta ári.... En nú eru bara tvö próf eftir og þá er komið jólafrí. Reyndar ætla ég að vinna allt fríið, en það er nú bara vegna þess að ég var í fríi síðustu jól í einhverjar þrjár vikur og vildi leyfa öðrum að komast að í ár. Annars allt fínt, ætla að halda áfram með lærdóminn. Þar sem það líður svona skuggalega langt á milli, þá segi ég bara Joy Kurisumasu to joy atarashi no nen desu :)