Sunday, March 23, 2008
Gleðilega páska!!
Páskadagur og ég er ekki eins og venjulega að borða súkkulaðipáskaegg í lange baner, heldur að skrifa ritgerð í japanskri kvikmyndasögu. Þarf að skila á fimmtudaginn. Er búin að skrifa ræðuna mína á japönsku einu sinni og senda til kennarans. Á eftir að fara svona tuttugu sinnum yfir hana. Er samt búin að borða mikið líður virkilega eins og litla fílnum núna. :) Manni leiðist svona einum heima, Severine upp á fjöllum því miður og ég var ekki heima í fyrradag svo þurfti að gera eitthvað í dag. Ætla svo í mat til mömmu í kvöld sennilega. Fer eftir virkninni núna. Er að minnsta kosti komin með forsíðu og svona 4 blaðsíður eða 5 af 8 svo það er nokkuð gott. Og allt þetta í dag. Er samt búin að hugsa um þetta í þó nokkurn tíma eins og venjulega. Þarf líka að lesa fyrir bókmenntaáfangann, sem byrjar í næstu viku og er í tvær vikur, intensive course. En bráðum er skólinn búinn og ég get farið að vinna. Hlakka til eiginlega, leika sér allan daginn. :) Ef þú lest þetta Ábi þá gleðilega páska og gangi þér vel með allt. Brjálað að gera hjá þér líka. Jæja stutt innlegg og aftur í lesturinn. :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Takk og gledilega paska! Vona ad ritgerdin gangi vel!Eg er i Mexiko nuna, otrulega skemmtileg borg! Skrifa meira seinna:)
Post a Comment