Sunday, April 27, 2008

Próf, próf, próf

Jæja, er byrjuð að læra undir prófin en þurfti að taka langt hlé, sökum þess að ég var að sofna yfir japönskunni. Er á netinu að hlusta á æfingarnar okkar frá því í vetur og þær eru soldið svæfandi, og svo er ég búin að sitja hér inní tölvustofu í Háskólatorginu og er með mjög svo kalda putta. Þarf mat og hressingu núna.

Fer í próf næsta þriðjudag sem er nákvæmlega í framburði, hlustunarpróf, sem sagt. Get ekki sagt að það sé mín sterka hlið, en er hins vegar búin að hlusta á allar æfingarnar nema eina, svo ég ætla að lesa orðaforðann og svona og hlusta aftur á morgun og hinn áður en ég fer. Þarf líka að æfa mig í tölum. Næsta próf er svo málnotkun sem ég þarf að læra mikið undir, og svo ritmál, þarf að læra öll kanji táknin sem eru svona hundrað fyrir utan náttúrulega orðaforðann aftur. En verð mjög fegin þegar þetta er búið.

Ræðukeppnin var í gær og gekk þokkalega miðað við stressið áður. Við fengum öll 30 prósent fyrir þetta. Samt sá ég kennarann næstum sökkva niður úr gólfinu þegar ég var að lesa, kannski ímyndun, en... Eitthvað til að hugsa um. Engar áhyggjur er ekki þessi týpa í dag til að verða kennarasleikja, kannski það vanti. En svona er aldurinn, nenni þessu ekki, vil bara læra, jú og skemmta mér í tímum. Það gæti stuðað suma.

Takk fyrir kortið Ábi ef þú lest þetta. Nú langar mig til Mexíkó, en það verður að bíða betri tíma. Annars ekkert mikið að frétta. Allir sem eru í prófum og lesa þetta, gangi ykkur vel! ;)

1 comment:

Ásdís said...

Það var lítið, já ég mæli sko tvímælalaust með Mexíkó. Sendi þér adressu emailið bráðum:)