Wednesday, August 27, 2008

loksins,loksins....

Jæja, sumarið er á enda og búið að vera mjög gaman. Ein vika launalaust frí en þá fór ég að skoða okkar fagra land aðallega á norð-austurhlutann eins og alltaf, nema að núna fór ég líka austur til Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Seyðisfjarðar, jú og náttúrulega í höfuðstað Austurlands, Egilstaða. Óla og krakkarnir fóru með mér og var þetta mjög fínt. Annars hef ég bara unnið í allt sumar og það var engin pása því nú er vetrarstarfið byrjað og ég er ennþá að vinna, sökum þess að skólinn byrjar ekki fyrr en í næstu viku.

Miyagi-san, fjölskylduvinur frá Tsukuba,var hérna um daginn og ég keyrði hann og samstarfsmenn hans um Reykjavík og nágrenni hægt að sjá myndir af því einhversstaðar, en ekki hér. Þeim fannst best að sjá Þingvelli, nánar tiltekið Almannagjá. Það hafa líka fleiri gestir rekið inn nefið í sumar, en það eru fjölskylda leigjandans og vinir. En mínir vinir komu líka að norðan og frá Sverige. Mjög gaman og um daginn sváfu alls 11 hér í íbúðinni. Sugoi ne. :)

Hef ekkert meira að segja en reyni að hafa ekki svona langt á milli næst. :)

No comments: