Jæja, enn er erfitt að komast í gang eftir jólin og námið er orðið mun erfiðara sem hjálpar ekki til. Er hjá pabba núna að skemmta unglingnum bróður mínum í þrjár vikur. Hann er frekar þreyttur eins og ég, því að við förum svo seint að sofa. Ég vegna þessa algenga vandamáls, myrkfælni, og hann vegna þess að hann er 17, held að sú tala segi bara allt sem þarf.
Byrjaði reyndar í nýjum áfanga í síðustu viku sem heitir "japanese film course" og var fyrsta myndin bara nokkuð góð. Hún heitir "Onibaba" fyrir þá sem þekkja eitthvað til japanskra kvikmynda, man ekki eftir hvern hún er en hún gerist mjög hægt og er eins konar lýsing eða ádeila á Hiroshima og Nagasaki sprengjurnar.
Asnaðist í japanska sögu II og held að ég sé of sein að segja mig úr áfanganum. Þarf í raun ekki að taka þennan áfanga fyrr en eftir ár en vinkona mín fékk mig með sér. Reyni að harka þetta af en vil samt ekki að þetta bitni á hinu náminu. Eða vinnunni, átti bara að vera svona með og ef álagið yrði of mikið þá ... En ég missti af lokaúrskráningu fyrir vorönn.
En nóg um nöldur hjá mér. Stelpurnar mínar eru bráðum að verða 8 ára, ja að minnsta kosti fimm þeirra sem eiga afmæli í febrúar og mars. Hlakka til, alltaf gaman í afmælum. Þegar ég segi mínar þá á ég við af leikskólanum, en ég hef verið með þær frá eins og hálfs árs aldri sumar hverjar. Hef ekki hitt drengina í langan tíma, því miður. Maður verður svo upptekinn í skóla, var búin að gleyma því.
Restin af fjölskyldunni er núna í Indlandi að sóla sig og skoða hitt og þetta. Þau ætla að kíkja á Taj Mahal, sem er frábært. Væri til í að vera í sól og sumri núna. Ekkert meira að segja í bili, en hvað skyldu vera mörg "bara" í textanum, hmmm..... :)
Monday, February 4, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
bara fjögur:) vona að þið borðið smá saltkjöt og baunir fyrir mig! Hefði líka afveg verið til í að fá mér bollur í gær!:)
Post a Comment