Tuesday, February 5, 2008

Saltkjöt og baunir túkall, not...

Ókei, þetta gengur bara ekki, drengurinn er ekki enn farinn að mæta í skólann og í morgun þá vaknaði ég líka of seint, hef á tilfinningunni að þegar pabbi og Stúlla báðu mig um að passa að Þórhallur kæmist í skólann á morgnana þyrfti ég að vera vöknuð klukkan 7 sem er meira en að segja það, núna a.m.k. alltaf þreytt. Skammdegið segir til sín. En þetta er samt hans skólaganga, get ekki neytt hann til að fara. Ég fór niður svona um það bil 4 sinnum í morgun og ég held að hann hafi ekki farið seint að sofa. Er nokkuð viss um að við séum að klúðra þessu litla "assignment"i sem við fengum upphaflega.

Matur er af skornum skammti það er heitur matur sem ég elda, er bara ekki að nenna þessu, en hitaðu upp spaghetti bolognese í gær og sauð spaghetti með. Nenni ekki að elda baunasúpu svo að við fáum bara kjúkling í kvöld með hrísgrjónum. Er samt að ná svefninum á rétt ról. Og er virkilega að læra núna, ótrúlegt en satt. Hef ekki nennt því heldur, en fékk nú samt 9 í prófinu á mánudag. En veit ekki með morgundaginn, þá er stærra prófið. Er að skrifa um framtíðarplönin mín sem eru að ferðast. Stutt í dag en reyni að skrifa meira síðar. Ganbatte!!

No comments: