Sunday, February 10, 2008

leti, leti, leti...hvað á maður að gera :)

Þetta er hreinlega orðið hlægilegt. Er ekki að nenna neinu þessa dagana. Þetta hús er heldur ekki með rétta andann. Maður verður bara svo ægilega þreyttur hérna inni. Reyndi að fara í Odda í gær og náði að læra svolítið en þurfti svo að keyra Þórhall í klippingu og hitta Mao vinkonu. Hún var með vinkonu sína með sér sem vill kannski leigja hjá mér. Hún heitir skrýtnu nafni og vinnur í Bláfjöllum en er mjög skemmtileg eins og Mao. Tók við skömmum frá kvikmyndasögukennaranum mínum, hún er ein af þessum ofuráhugasömu kennurum og við áttum að lesa 100bls. fyrir fyrsta tímann en ég sagði henni það strax svo það leit ekki eins illa út þegar allir hinir sögðust heldur ekki hafa lesið. En þetta er einn af þessum stuttu námskeiðum, sem það átti víst ekki að verða þegar önnin byrjaði. En þessi kona er frá Bandaríkjunum og mjög fín. En það er vissulega svolítið erfitt að sitja frá 14 til 18:30 og horfa á tvær japanskar kvikmyndir "back to back" og tala um þær í svona einn og hálfan tíma. Núna er ég að vinna bara á mánu- miðviku- og föstudögum. En frá 13 alla dagana og til 17:30 því að ég skila tvo daga í viku. Jæja, þarf að fara niður og taka þvottinn og sjá hvort Þórhallur er að læra. Hann er alveg jafn latur og ég. Kannski nenni ég að skrifa meira næst, en verð að segja að segja að mér finnst þetta mjög gott hjá mér í þessum mánuði. :)

No comments: